Staðreyndin sem var afturkölluð — byggir vélin á vísindum sem standast ekki lengur?
Yfirlit
Kjarnaspurning
Mállíkön læra af texta sem þegar er til, líka af rannsóknum sem hafa verið afturkallaðar (e. retracted) eða standast ekki endurtekningu. Þau geta því endurtuggið úrelta „staðreynd“ af fullu öryggi. Hvernig veistu hvort vélin byggir á vísindum sem standast ekki lengur, og hvernig rekur þú staðreynd aftur til uppruna hennar?
Námsmarkmið
Eftir verkefnið getur nemandinn:
- valið vísindalega „staðreynd“ og lýst eigin skilningi á henni (viðmið án vélar);
- látið gervigreind rekja staðreyndina aftur til upprunaheimildar;
- sannreynt stöðu heimildarinnar, hvort hún hefur verið afturkölluð, leiðrétt eða ekki endurtekin (eftirmyndunarkrísan);
- greint hvernig mállíkan getur ofskynjað (e. hallucination) vísindalega samstöðu með því að endurtyggja úrelt eða afturkallað efni;
- kveðið upp rökstuddan dóm um áreiðanleika og borið ábyrgð á heimildavinnunni.
Aðferðar-tenging (rannsóknaraðferð færð á kennslufræði)
- Mannlega akkerið = mannlegt viðmið: nemandinn skrifar hvað hann heldur að sé satt og hvers vegna, áður en hann rekur nokkuð.
- Vélræna uppbrotið = ICCRA-kvaðning sem rekur staðreyndina + krefst heimilda með stöðu.
- Ábyrgðarskjalið = Honest Oracle: heimildarekja, staðfesting gegn afturköllun, dómur.
Hvar pakkinn situr í Tækniseiglu
Útfærsla á einingu 05 (Vísindi), tengd 17 (Miðlar: heimildarakning) og 20 (Mannréttindi). Bóknáms-/raunvísinda-vídd settsins.
Fyrir hvern (notendasaga)
Hentar vísindaforvitnum nemendum og sérstaklega Aroni (bráðger, vill dýpt): heimildarekja og afturköllunarleit bjóða upp á raunverulega dýpt fyrir þá sem klára hratt.
Skref 1: Mannlega akkerið
Án vélar. Skrifaðu þetta sjálfur, áður en þú rekur nokkuð eða flettir nokkru upp. Þetta er viðmiðið þitt: hvað þú heldur að sé satt og hvers vegna. 500–800 orð.
Veldu staðreyndina
Veldu eina vísindalega „staðreynd“ sem þú hefur heyrt og þér finnst áhugaverð eða sannfærandi, til dæmis um næringu, sálfræði, heilsu, dýr, geim, loftslag eða líkamann. Helst eitthvað sem fólk endurtekur oft („vísindin segja að …“).
Skrifaðu — með eigin orðum
- Staðreyndin. Settu hana fram skýrt, eins og þú myndir útskýra hana fyrir vini.
- Hvaðan kemur hún? Hvar heyrðirðu hana? Manstu eftir heimild, eða „heyrði það bara einhvers staðar“?
- Hvers vegna trúirðu henni? Hvað gerir hana sannfærandi: hljómar hún rökrétt, segja það allir, eða sástu raunverulega rannsókn?
- Hversu viss? Á skalanum „alveg viss“ → „hef bara heyrt það“: hvar stendurðu, og hvað myndi sannfæra þig um hið gagnstæða?
Eitt heiðarlegt mat
Ljúktu við setninguna: „Ef þessi staðreynd reyndist röng eða afturkölluð, þá myndi það koma mér [mikið / lítið] á óvart, vegna þess að …“
Geymdu þetta óbreytt. Í Skrefi 3 berðu það saman við það sem heimildarakningin leiddi í ljós, og þá sérðu hvort vissan þín hvíldi á gögnum eða á endurtekningu.
Skref 2: Vélræna uppbrotið
Nú notarðu gervigreind sem magnara til að rekja staðreyndina aftur til uppruna, verk sem væri seinlegt handvirkt. En mundu: vélin er sjálf þjálfuð á gömlum texta og getur endurtuggið afturkallað efni. Þú stýrir rakningunni; þú sannreynir stöðuna.
A. Þú ert yfirmaðurinn (þrjár ákvarðanir)
- Markmiðið: „Ég ætla að rekja staðreyndina [X] aftur til upprunaheimildar og kanna hvort hún stenst enn (ekki afturkölluð, endurtekin).“
- Kvaðningin (e. prompt): þú hannar hana (sniðmát hér að neðan).
- GO: þú samþykkir keyrsluna og berð ábyrgð á heimildavinnunni.
B. ICCRA-kvaðningin (yfirfarið sniðmát)
Uppbyggingin er hönnuð til að þvinga fram rökstuðning og andóf gegn smjaðri (e. sycophancy), þ.e. tilhneiging vélarinnar til að staðfesta það sem þú vilt heyra. Lykilorðið ANTISYCOPHANCY í sniðmátinu er nefnt eftir því.
INTENT: Raktu staðreyndina "[staðreyndin þín]" aftur til upprunaheimildar(um). Tilgreindu
hvar hún kemur fyrst fram og hvaða rannsóknir hún hvílir á.
CONTEXT: Ég vil meta hvort hún stenst enn í ljósi eftirmyndunarkrísunnar og
afturkallaðra rannsókna.
CONSTRAINTS:
- Gefðu upp HEIMILDIR sem ég get flett upp (titill, höfundar, ártal, tímarit, DOI ef til).
- Merktu hverja heimild: [STAÐFEST] (ég gef hlekk/DOI) eða [ÓVISST] (man ekki nákvæmlega).
- Convergence ≠ corroboration: ef margar síður endurtaka sömu fullyrðingu en vísa í
sömu upprunarannsókn, telst það EIN heimild.
- ANTISYCOPHANCY: Skráðu sérstaklega hvort einhver heimildanna gæti verið afturkölluð,
umdeild, eða ekki endurtekin, og hvað mælir GEGN staðreyndinni.
- ALDREI finna upp DOI, titil, höfund eða ártal. Ef þú veist ekki, segðu "ég veit ekki".
AUTHORITY: Þú mátt leita víða, en ég sannreyni hverja heimild með eigin augum.
REPORTING: Skilaðu (1) keðju: staðreynd → upprunaheimild(ir) → staða, (2) lista yfir
heimildir sem ég þarf að sannreyna, og (3) "það sem mælir gegn".
C. Sannprófunin (þú, ekki vélin)
Fyrir hverja heimild sem vélin gefur: flettu henni upp með eigin augum og athugaðu stöðu hennar: er greinin til, er hún afturkölluð eða leiðrétt, hefur niðurstaðan verið endurtekin? Nýttu opinber tól sem skólinn hefur (t.d. tímaritið sjálft, opinbera afturköllunarskrá, eða heimildatól eins og Scite ef það er í boði). Heimild án staðfestrar stöðu er ekki sönnun.
D. Úttak þessa skrefs
Keðjan staðreynd → uppruni → staða, listi yfir heimildir til sannprófunar, og „það sem mælir gegn“. Ekki dæma enn. Það bíður Skrefs 3.
Skref 3: Ábyrgðarskjalið
Lokahliðið. Hér sannreynir þú stöðu heimildanna, afhjúpar hvar vélin endurtuggði úrelt efni, og kveður upp dóm um áreiðanleika sem þú berð ábyrgð á.
1. Berðu saman við mannlega akkerið
Taktu Skref 1 fram. Hvíldi vissan þín á raunverulegri rannsókn, eða á því að hafa heyrt staðreyndina oft? Kom staða heimildanna þér á óvart?
2. Honest Oracle — afhjúpaðu vélina
- Staða heimilda: Fyrir hverja heimild: stenst hún (til, óafturkölluð, endurtekin), eða er hún afturkölluð / umdeild / óendurtekin? Skráðu með hlekk eða DOI.
- Ofskynjun (e. hallucination): Fann vélin upp heimild: titil, höfund, ártal eða DOI sem er ekki til? Þetta er algengt og hættulegt. Skráðu hverja ofskynjaða heimild.
- Convergence ≠ corroboration: Litu margar heimildir út fyrir að styðja staðreyndina en sóttu í raun allar í sömu (mögulega veiku) upprunarannsókn?
- Ofskynjuð samstaða: Setti vélin fram „vísindin eru sammála“ þar sem staðan er í raun umdeild eða óendurtekin?
3. Hvað stenst, hvað ekki?
| Heimild | Staða (staðfest/afturkölluð/óvíst) | Hvernig ég sannreyndi | Styður staðreyndina? | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| (Tafla til útfyllingar) | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Dragðu ályktun: stenst staðreyndin í ljósi þess sem þú fannst: að fullu, að hluta, eða ekki?
4. Höfnun
Nefndu minnst tvö atriði úr úttaki vélarinnar sem þú hafnar: ofskynjaða heimild, afturkallaða rannsókn sem var sett fram sem gild, eða „samstöðu“ sem stóðst ekki.
5. Þinn dómur og ábyrgð
Svaraðu í fyrstu persónu og rökstyddu svarið: hversu áreiðanleg er staðreyndin, og á hverju hvílir dómur þinn? Taktu fram hvaða heimildir þú staðfestir, hverjar þú gast ekki staðfest, og hvað þú myndir ekki fullyrða án betri gagna. Mundu: að segja „ég veit það ekki með vissu“ er heiðarlegri vísindi en að endurtaka ósannaða staðreynd af öryggi.
Fylgiskjöl
- Hæfnilínur: Undirlagsdómgreind · Jaðarlæsi
- Kennaraleiðbeiningar
- Matsviðmið
- Dæmi: Útfyllt ábyrgðarskjal