Verkbókin þín

Þetta er þín verkbók. Ekki skólans, ekki áfangans, ekki gervigreindarinnar. Hún er staður þar sem þú geymir ummerki af því sem þú gerðir raunverulega í Tækniseiglu, og hvað þú hugsaðir um það.

Hún er sönnun á því sem þú gerðir, fyrir þig fyrst og fremst. Þú getur sýnt hana kennara, foreldri eða síðari vinnuveitanda ef þú vilt, en það er þitt val.

Hvernig hún virkar

  1. Þegar þú klárar Verkið í einhverri einingu, afritaðu sniðmátið, dagsettu það, og fylltu út tvo reiti: ummerki (hvað þú gerðir eða sást) og ígrundun (hvað þú hugsar núna).

  2. Ef þú tókst mynd eða raddbút, settu skrána í media-möppuna og vísaðu í hana.

  3. Það er allt og sumt. Ein færsla á að taka innan við mínútu.

Þrjár reglur sem gera hana að þinni

Hún er þín eign

Öll verkbókin er venjulegar textaskrár og myndir í möppu. Þú getur afritað alla möppuna hvenær sem er og hún virkar áfram, líka þótt áfanginn hverfi. Það er prófsteinninn á að eitthvað sé raunverulega þitt.

Enginn gefur einkunn fyrir ígrundunina þína

Hún er til að hugsa, ekki til að þóknast.

Engar tölur, engar dagaraðir, ekkert kapp

Þetta er ekki app sem fylgist með þér. Þú ræður hraðanum.

Persónuvernd

Sniðmát fyrir eina færslu

Afritaðu þetta fyrir hverja færslu. Nefndu skrána til dæmis 2026-09-03-idrottir.md.

# <dagsetning>, <stutt heiti á verkinu>

**Eining:** <t.d. 07 íþróttir>

## Ummerki
<hvað gerðirðu eða sást? Ein mynd eða raddbútur í media/, eða 2-3 línur>

## Ígrundun
<hvað hugsarðu núna? Hvað kom á óvart, hvað veitti mótstöðu, hvað myndirðu gera öðruvísi?>