Kennaraleiðbeiningar
Yfirlit
| Þáttur | Útfærsla | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Tími | 2–3 kennslustundir + heimavinna | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Gæðaflokkur | B (æfing) eða C (fullt verkefni með skilum) | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Hópastærð | Einstaklingsverkefni; hlustun og umræða í hópum | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Tól | Gervigreindartól með vefleit; ókeypis aðgangur dugar | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| (Tafla til útfyllingar) | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Af hverju þetta þema virkar
Tónlist stendur nemandanum nærri og er hlaðin tilfinningum. Það gerir mannlega akkerið sterkt og persónulegt. Þemað hentar sérstaklega vel nemendum sem lifa í streymisheiminum (sjá notendasögu Dags). Hvert skref er stutt og afmarkað, sem hentar nemendum sem eiga erfitt með löng, þétt verkefni.
Undirbúningur
- Engin sérstök tól umfram eitt gervigreindartól með vefleit.
- Hægt að byrja kennslustund á því að spila tvö lög (eitt frá ~1995, eitt frá ~2024) og láta nemendur giska á muninn áður en vélin greinir.
- Lestu útfyllta dæmið til að sjá væntanlegan gæðastaðal.
Framvinda
- Skref 1 (15–20 mín, án vélar): nemendur skrifa um sína tónlist. Engin tæki.
- Skref 2 (kennslustund): ICCRA-kvaðningin; áhersla á að aðgreina gögn frá túlkun.
- Skref 3 (kennslustund + heimavinna): Honest Oracle, „hvað tapast/skapast“, dómur.
- Umræða: spiluðu dæmin; hver fann mótdæmi sem braut mynstrið?
Algengar gildrur
- Skoðun tekin sem gögn. „Lög eru verri núna“ er túlkun, ekki mæling. Krefstu aðgreiningar.
- Ein hlið. Sumir nemendur sjá aðeins tap. Krefstu beggja dálka í Skrefi 3. Reikniritin gerðu líka nýja sköpun mögulega.
- Ofskynjaðar (e. hallucination) rannsóknir. Vélar finna upp „Spotify-rannsóknir“ með tölum. Krefstu uppflettingar.
- Bergmál. Nemandi sem bað vélina bara um að staðfesta fyrirframskoðun fékk bergmál, ekki greiningu.
Aðlögun
- Skapandi greinar/tónlistarnám: kafaðu dýpra í hljóðblöndun, útsetningu, útgáfutaktík.
- Bóknám: tengdu við athyglishagkerfið og dópamín-lykkjuna sem hagfræðilegt og sálfræðilegt fyrirbæri.
- Styttri útgáfa: sleppa samanburði tímabila, einbeita sér að einu lagi og einum króki.
Umræðuspurningar
- Hver semur lagið: listamaðurinn eða reikniritið sem verðlaunar ákveðið form?
- Er styttra lag verra lag, eða bara annað lag?
- Hver er munurinn á að skapa fyrir manneskju og að fínstilla út frá sleppihlutfalli (e. skip rate)?